Jæja, það fór
sem fór hjá góðvini mínum, stórsöngvaranum Búna Björns, hann
féll á því að hitta ekki á lokatóninn. Fólk á erfitt með að
fyrirgefa svona stór mistök og þar sem að það er kosið með
einhverjum en ekki á móti einhverjum þá átti hann lítinn sjéns.
Af vináttu og vitneskju um að hann geti betur þá gaf ég honum 20
atkvæði, leit svo á að þar sem að ég hef aldrei kosið í þessari
keppni áður þá jafnaðist þetta út. Samdi líka litla vísu um
þessa reynslu hans.
Atkvæðum ég blædd’á
hann
Þegar loks kom
hléið
En það sem Búni ekki kann
Er að far´á háa c-ið
Annars styttist í jólavertíðina í
grunnskólanum á Hellu, hlutir eins og músastigar, jólakort og próf
koma upp í hugann í minnungunni og tilhlökkun ríkjandi tilfinning
hjá mér þar sem að ég hef gaman af músastigum og jólakortum og fæ
nú að búa til prófin. Ég finn bragðið af kalkúninum verða sterkara
og sterkara með hverjum deginum sem líður og hlakka mikið til að
spreyta mig á nýjum og gömlum borðspilum. Þið sem lásuð þessa
bloggsíðu um síðustu jól ættuð öll að vita að ég hef mjög gaman af
jólunum og mér finnst alltaf jafn skrítið að heyra fólk segjast
ekki þola jólin.
Food, good. Gifts, good, boardgames
goooooood. (Þarna er ég hálfpartinn að vitna í skáldsagnarpersónu
sem notaði önnur orð, veit einhver hver það er og hvaða orð hann
notaði)?
Stutt saga til að koma ykkur í
jólaskap.
Leifsspjallið
En það bar til um
þessar mundir að boð barst frá Leifi kennara að hækka skyldu allar
einkunnir í heimsbyggðinni. Þetta átti að vera fyrsta hækkunin í
mörg ár og var Leifur á þessum tímapunkti mjög bjartsýnn. Nemendur
fóru víða í leit að námsbókum, hver til síns bókasafns. Þá fór
Jósef frá Sandvík í Bæjar- og héraðsbókasafnið í Árborg, til borgar
Leifs, sem heitir Selfoss en hann hafði mikinn áhuga á eðlisfræði
og vildi mennta sig frekar ásamt Maríu heitkonu sinni sem var
þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími, er hún skyldi verða
léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann burbundy
trefli og lagði hann í bókahillu, af því að eigi var rúm á
bókasafninu. En í sama bæ voru fyllibyttur út um allan bæ sem héldu
ölkelduhúsum gangandi með tíðum heimsóknum og miklum viðskiptum. Og
engill Drottins stóð hjá þeim (sumir halda því fram að engillinnn
hafi verið ofskynjanir lyfja). Og engillinn sagði við
þá:
Engill: “Verið
óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun
öllum óþverralýðnum”: “Yður er í dag frelsari fæddur sem mun afnema
einokun Á.T.V.R”.
Þegar engillinn fór
ræddu fyllibytturnar saman og ákváðu að fara og hitta þennan
frelsara.
FB1: “Hey, drífum
okkur svo að við náum Pakkaranum á eftir”.
FB2: “Nei, förum
bara fyrst á Pakkarann og kíkjum svo á snáða þegar að það lokar
þar”.
FB3: “Hvaða snáða
*rop*”?
Sex bjórum seinna
þegar ljósin hafa verið kveikt á Pakkhúsinu ráfa þeir út og þegar
að þeir átta sig á því að bókasafnið er í næsta húsi ákveða þeir að
láta verða af heimsókn. Þegar þeir koma inn í bókasafnið sjá þeir
að Jósef er ekki að læra eðlisfræði heldur að reyna að átta sig á
því hvernig í ósköpunum María gat orðið ófrísk án þess að hann
hefði nokkuð tíman sængað með henni.
FB3: “Hvar erum
við *rop*”?
FB1: “Sjáið
ungabarnið þarna í hillunni við hliðana á
stjörnufræðibókunum”?
FB2: “Já, er þetta
frelsarinn sem speisaði engillinn var að tala
um”?
FB3: “Hvaða engill
*rop*”?
Jósef: “Hvur
djöfullinn var að ríða konunni minni”?
FB3: “Ég skal
alveg ríða henni *rop*”.
Fyllibytturnar
labba að barninu og færa því gjafir, FB1 færir því stóran bjór, FB2
færir því hálfan pakka af Marlboro og FB3 gefur því eld. María fer
fljótlega að renna hýru auga til FB2 og þegar að Jósef sér í hvað
stefnir skellir hann líffræði bókinni og fer að
gráta.
FB3: “Afhverju er
þessi stelpa að gráta *rop*”?
Skyndilega birtist
ljósgeisli sterkur og inn ekur Leifur á silfurgráum Lancer. María,
Jósef, fyllibytturnar og barnið líta öll upp með undrunarsvip er
Leifur segir:
Leifur: “Jósef,
konan þín er hóra og hún hefur sofið hjá hálfum bænum, María, það
er komið út úr faðernisprófinu og ****** *******son er faðirinn,
fyllibyttur, það er partý heima hjá mér og ykkur er öllum boðið. Og
litla barn, sjáumst eftir 6 ár í handmennt og það er eins gott að
þú verðir búinn að læra að skeina þér.
FB1: “Hey, kíkjum
í þetta partý”.
FB2: “Ég kann
Hjálpaðu mér upp á gítar”.
FB3: “Er þetta
Richard Gere *rop*”?
María: “Jósef, ég
ætla að dömpa þér”.
Jósef: “Já flott,
ég ætla að reyna að einbeita mér af því að læra
eðlisfræði”.
Barn: “GLEÐIÐLEG
JÓL”!
Heilræði dagsins: Takið frá 2. maí
eftir 5 ár þegar að þessi saga mun líta dagsins ljós á hvíta
tjaldinu.